Naktar konur geta sjálfum sér um kennt.

Hvað eru konur líka á annað borð að henda pjötlunum af sér fyrir framan myndavélaóðan kærasta? Hún, sem og aðrar konur í hennar stöðu, geta bara sjálfum sér um kennt og ættu bara að taka afleiðingunum. Að sitja fyrir á myndum eingöngu á netsokkum er hrein og klár heimska þegar fólk veit að sambönd, sérstaklega í stjörnuþokunni, eru oft ekki langlíf. Henni var nær.
mbl.is Óttast að djarfar myndir af sér leki á netið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vitandi að bandaríkjamenn eru hræddir við konubrjóst, svo maður tali nú ekki

um skapahár.

Örn Johnson ´43 (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 13:27

2 identicon

Fólk má alveg gera það sem því dettur í hug svo lengi sem það skaðar engan annan. Erótísk myndataka getur verið mjög spennandi fyrir báða aðila ef fulls trausts er gætt. Í þessu tilfelli hefði hún bara átt að prjóna sokka eða kíkja í bók. Mér finnst ekkert að myndartökunni sem slíkri en þessi gaur er greinilega skíthæll, svipað mikið til af þeim og rugluðum breddum.

Erótík og traust er eitt af því fallegasta sem er til.

Guðmundur Ásgeirsson (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 13:41

3 identicon

Munurinn á Bandaríkjamönnum og Talíbönum er aðeins sá að þeir tala mismunandi tungumál, klæðast öðruvísi fötum og búa í sitthvoru landinu.

Hinsvegar, það sem er líkt með þeim er að þeir afa öfgasinnaðar trúarskoðanir, öfgafullar skoðanir á stjórnmálum, fordómafullir og lítisvirða konur.  Stúlka ein í bandarískum menntaskóla var send heim úr skóla og síðar rekin úr skólanum, vegna þess að hún neitaði að ganga í brjóstahöldum nærfata, þ.e., undir ytri klæðnaði, því þá sást móta fyrir geirvörunum undir peysunni/blússinni!!!!  Oj barasta - geirvörtur!!!   Hvað er eiginlega að Bandaríkjamönnum, eru þeir ekki normal???  Þurfa þá ekki karlmenn að ganga í pungbindum með hlífðarskildi eins og margir íþróttamenn því það gæti mótað fyrir kónginum og kúlunum í pokanum!?

Ég dvaldi eina kvöldstund með gáfaðri og vel gefnri vændiskonu í Amsterdam.  Hún var vel menntuð og talaði nokkur tungumál, m.a., vorum við að gantast að tala saman á ensku og þýsku, en hún kunni einnig hollensku, frönsku svo og indónesiska mállísku sem var móðurmál hennar og japönsku sem pabbi hennar hafði kennt henni, en hann var Japani.  Hún sagði mér það að hún veldi viðskiptavini sína af kostgæfni.  T.d., yrðu þeir að koma vel fyrir og vera ódrukknir.  Einnig kærði hún sig ekki um Araba og flesta íslamskrar trúar, hún þekkti þá m.a., frá heimalandi mömmu sinnar. Ástæðan var einfaldlega kvenfyrirlitning þeirra.  Þó ekki allra, en flestra.  Hinsvegar, þá voru Bandaríkjamenn frá suðurríkjum BNA alveg útaf sakramentinu, því framkoma þeirra við kvenfólk væri slík, að þeir litu á konur, hvort sem var vændiskonur, eiginkonur eða kærustur, sem skítinn undan skónum sínum.  Og þá skipti ekki máli hvort þeir væru hvítir eða svartir.

Hinsvegar væru japanskir viðskiptavinir í uppáhaldi hjá henni, þeir væru svo kurteisir og "viðskiptasinnaðir", að þegar þeir væru búnir, böðuðu þeir sig, borguðu yfirleitt aukapeninga fyrir góða þjónustu og hneigðu sig brosandi og fóru - aldrei neitt múður.  Ég spurði þá stoltur og ljóshærður hvernig henni líkaði við okkur Skandinavana?  Hún missti aðeins brosið, varð aðeins hugsi og svaraði eeftirfarandi: "Ef þeir eru ófullir, þá eru þeir svosem ágætir!!"

Svona er nú það!

Uppreisnarseggurinn@gmail.com (IP-tala skráð) 6.8.2008 kl. 14:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Lolitan

Höfundur

Lolitalitla
Lolitalitla
Felubloggari með ágætis húmör! Ætla mest að kasta fram stuttum hugleiðingum um fréttir líðandi stunda. Kannski skrifa smá öðru hvoru um aðra bloggara, kannski senda inn athugasemdir einhvers staðar.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband