Færsluflokkur: Bloggar

Erótíkin lekur af ólympíuleikunum.

Ég væri nú alveg til í að sitja innan um heita og sveitta karlmenn í gufubaði, jafnvel þó ég sé ekki mikið fyrir það að vera í sveittu umhverfi. Ótrúlega fallegt að sjá rennblauta og sveitta líkama þeirra sem t.d. eru að vinna í hita og sól, hvílík nautn sem því fylgir að horfa á útlínur og lögun þeirra sem þannig er ástatt fyrir. Erótíkin er mikil í kringum blauta líkama, mér finnst það allavega heillandi á meðan ég er ekki í svitabaðinu nema að hluta til.


mbl.is Keppa í svitabaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vantar breimandi högna í ferðalag!

Ég gæti nú vel hugsað mér að skjótast á Ástarvikuna og taka fullan þátt í hverjum þeim ástarleik sem í boði er. Kannski ég ætti að kíkja í kringum mig á mögulega þátttakendur í slíkum breimleik með mér. Hver veit nema svona gæti orðið dásemdin uppmáluð, ekkert nema kynlíf og gleði? Þetta hljómar allavega þess virði að skreppa í og taka þátt í, ekki satt? Einhver sem vill koma með?
mbl.is Ástarvika haldin í fimmta sinn í Bolungarvík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Burt með dýrin.

Já, þetta er nú bara hið besta mál. Það er alltaf svo mikill sóðaskapur og vandræðagangur í kringum þessi bölvuðu kvikindi um allt. Bara gott mál að höggva smá skarð í hópinn og lóga einhverju af þessu. Enda ætti fólk ekki að fá leyfi til að hafa svona dýr nema til að halda þeim inni hjá sér, en næsta víst er að mörg þessi flækingsdýr eru til komin vegna þess að fólk hendir bara gæludýrum á Guð og gaddinn svo enda þau sem flækingar um allt. Það ætti að útrýma þessu öllu saman bara, um allan heim.
mbl.is Flækingsdýrum útrýmt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karl á ekki að fara í kjól.

Ég mynd lítið vera hrifin ef ég ætti son sem kæmi heim klæddur kjól, málaður og með hárkollu. Mikið er þetta leiðinlegt að fylgjast með, karlmenn í kvenfötum. Mér finnst Þetta heilmikill viðsnúningur og brenglun, eitt að vera samkynhneigður en annað að vera karlmaður sem klæðir sig í kvenmannsfatnað. Verð að viðurkenna að mér er ekkert um þetta og kann bara alls ekki við þetta, en það er bara ég og mitt snubbótta viðmið til þessara mála.
mbl.is Snýst um öfgar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Naktar konur geta sjálfum sér um kennt.

Hvað eru konur líka á annað borð að henda pjötlunum af sér fyrir framan myndavélaóðan kærasta? Hún, sem og aðrar konur í hennar stöðu, geta bara sjálfum sér um kennt og ættu bara að taka afleiðingunum. Að sitja fyrir á myndum eingöngu á netsokkum er hrein og klár heimska þegar fólk veit að sambönd, sérstaklega í stjörnuþokunni, eru oft ekki langlíf. Henni var nær.
mbl.is Óttast að djarfar myndir af sér leki á netið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Milljónir í kenjar.

Uss og svei bara. Þegar fólk veit ekki lengur hvað það á að gera við peningana þá er þetta víst góð hugmynd, svei attan. Nær hefði verið hjá henni að hlú að einhverjum aðstandanda eða taka inn til sín ættingja sem er illa settur en að henda einhverjum millum í svona bjánaskap. Það eru til hellingur af alls skyns dýrum sem hægt er að fá til sín ef maður er einmanna, en að sýnast svona með dýrum dómi er bara sýndarmennska finnst mér.
mbl.is Lét klóna kjölturakkann sinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aumingjaskapur að þurfa að borga fyrir það eitt að opna augun fyrir lífinu.

Meiri aulahátturinn, að þurfa aðstoð í þessa veru er bara kjánaskapur. Auðvitað á fólk að rífa sig uppúr svona aðstæðum sjálft og hjálparlaust. Í mínum augum er það helber aumingjaskapur ef fólk getur ekki sjálft komið sér aftur á skrið í lífinu án þess að þurfa að borga einhverjum fyrir það eitt að opna augu sín. Endalaust verið að grípa í rassinn á þeim sem telja sig eiga í vandræðum, ástarsorg mæ ass.
mbl.is Aðstoð í ástarsorg
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Umrenningurinn Björk.

Mér finnst það hreint ekki undarlegt að hún hafi hafnað í þriðja sæti yfir verstu hörmungarnar. Hún er ætíð svo kjánalega klædd og svei mér þá ef ekki bara eins og umrenningur oft. Sennilega er það jú samt eitt af hennar aðalsmerkjum, að vera diffirent from the rest. En hjálpi mér hvað sumt af því sem hún klæðist er bara algerlega út úr kú. Nýjasta dressið sem sést á myndinni er bara eins og úr teiknimynd um Alladin, frekar ömurlegt finnst mér.
mbl.is Kosið um klæðaburð fræga fólksins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þemavika hausaveiðara?

Hvað er eiginlega í gangi? Er vika afhausaranna núna eða eitthvað álíka sjúklegt. Stutt síðan, ja eða í gær var það ekki, sem maður stakk ungan mann og skar af honum hausinn í rútu. Núna er það maður sem tekur höfuð af kærustu sinni. Hvaða afhausunarárátta er í gangi eiginlega?
mbl.is Myrti kærustuna og gekk með höfuð hennar um götur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sér karlinn bara flísarnar í augum annarra en ekki eigin bjálka?

Ég las það einhvers staðar hérna á blogginu að þessi karlaumingi væri nú ekki barnanna bestur, svo hann ætti nú kannski að skoða eigin bjálka sem stendur úr hans herbúðum. Eitthvað las ég um að hann hafi t.d. skilið við eiginkonu sína eftir að hún hafi lent í svakalegu slysi, ástæðan, jú vegna þess að eftir slysið var hún ekki sú sem hún hafði verið áður. Hvernig ætti fólk að geta treyst svona manni til að stjórna landinu þeirra?
mbl.is McCain: Skopskyn nauðsynlegt í kosningabaráttunni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Lolitan

Höfundur

Lolitalitla
Lolitalitla
Felubloggari með ágætis húmör! Ætla mest að kasta fram stuttum hugleiðingum um fréttir líðandi stunda. Kannski skrifa smá öðru hvoru um aðra bloggara, kannski senda inn athugasemdir einhvers staðar.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (9.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband