Færsluflokkur: Bloggar

Er fagur kvenleiki í útihátíðafylleríi?

Við verðum nú að vona að ungir menn, nú eða gamlir, munu nú sýna af sér góða hegðun gagnvart konum núna um helgina, sama hvar á landi er og verður. Muna karlmenn, nauðgun er raunverulegur glæpur sem ekki verður tekinn aftur til baka þegar helgin er búin, eða þegar og ef rennur af ykkur sem slíkt stundið í ölæði. Auðvitað eiga konur ekki að stunda fyllerí á útihátíðum, hvar er kvenleikinn í slíku?
mbl.is Þrír gistu fangageymslur í Eyjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur á vitlausum stöðum í lífinu.

Já einmitt hugsanlega gæti þetta verið málið með konur sem eru á brölti um karlaheim, að þær höndla hugsanlega ekki málið og fara á glæpabrautir. Enda segi ég bara ekki annað en að þær ættu að hætta þessari vitleysu og halda sig heima bara, hugsa um heimili, eiginmann og börn. Þá myndu þær ekki lenda í svona skelfilega mikilli vitleysu.
mbl.is Eiginkona Shinawatra dæmd í þriggja ára fangelsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mannvonska eða djöfulsskapur?

Ljótleikinn í sinni verstu mynd. Hver getur verið svo grimmur að ætla sér að slasa saklausa borgara? Það er eitt að óska ekki eftir því að hafa svona fyrir augunum, en skelfing má það vera mikil vonska að hóta meiðingum eða jafnvel dauða saklausra þátttakenda sem og áhorfenda.
mbl.is Hótunarbréf vegna gleðigöngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauðsokkur og femínistar gera mikinn usla í heiminum.

Þarna mætti nú líka alveg taka á því og skrifa bók um það hvernig konur eiga að fara að því að gera menn sína hamingjusama. Það vantar mikið uppá það að nútímakonan kunni að hlúa að heimili og húsbónda heimilisins. Nútímakonan er aldrei kyrr, stanslaust á einhverju valdaklifri í stað þess að einbeita sér að því að byggja upp fallegt heimili og góða fjölskyldu. Kannski það væri einhver merk kona, eins og t.d. Rósa Ingólfsdóttir, sem ætti að taka svoleiðir verk að sér og koma nútímakonunni aftur inn á heimilið.
mbl.is Karlmenn læra um konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gott og mikið kynlíf fyrir hjónaband er ljúft ef það er öruggt.

Að sjálfsögðu á að fara að öllu með gát, nota verjur og njóta lífsins. Ótímabær þungun er ekki góð ef hún hlýst af stundarkynlífi á útihátíð með einhverjum sem kona veit engin deili á. Samt á að njóta lífsins og lifa hátt þegar maður er ungur, öruggt en mikið er málið þar til í hjónaband er komið. Hjá mörgum breytist kynlíf nefnilega þegar í hjónaband er komið, úr öruggu í óöruggt og miklu í lítið. Auðvitað eru alltaf undantekningar og ætla ég mér að verða ein af þeim, stunda mikið en öruggt kynlíf í hjónabandi seinna meir.
mbl.is Umræða um kynferðismál Íslendinga oft skrýtin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Photoshop eða Silicon er ekki af hinu góða.

Alvöru kona sem stendur á sínu. Það er ljótt þegar konur fara út í að breyta líkama sínum frá því sem þeim var úthlutað, málið er bara að lifa heilbrigt og taka á aukakílóum þegar þau birtast og vera ánægð með restina. Silicon og annað uppblásið er af hinu vonda og ætti aldrei að fara útí. Sorglegt að sjá sumar stjörnur sem eyðileggja útlit sitt með því að láta til dæmis blása upp brjóst eða varir, ógeðfellt reyndar.
mbl.is Neitaði að láta stækka brjóstin á myndum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kvenleikinn felst m.a. í barneignum.

Þarna fer sönn kona. Svona eiga konur að vera, bera mönnum sínum börn. Ég segi kannski ekki að þau þurfi að vera svona mörg, enda er ekkert sniðugt að fjölga mikið við heiminn eins og ástandið er í dag. En þetta er málið samt, góð kona sem elur af sér heilbrigð og hamingjusöm börn.
mbl.is Frjósamasta kona jarðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Látið okkar góða borgarstjóra í friði.

Afhverju í ósköpunum getur fólk ekki séð að sér og látið borgarstjórann í friði. Getur fólk ekki séð að hann er að gera góða hluti sem borgarstjóri? Almenningur og minnihlutastjórn í borginni ætti að sjá sóma sinn í að meta verkin og leyfa borgarstjóra að vinna sína vinnu í friði fyrir átreiti þeirra. Ömurlegt væl alltaf í öllum þeim sem eru í öðrum flokkum í hvert sinn er okkar góði borgarstjóri lætur heyra í sér í fjölmiðlum.
mbl.is Segja borgarstjóra fara með rangt mál
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrokagikkur og orðljótur að auki.

Það er gott að þessi orðljóti og hrokafulli maður fékk ekki ánægjulegri meðferð hérna á landi. Það ætti bara að loka fyrir það að horkafullar stjörnur geti bara vaðið hérna inn og ætlast til að allt og allir sitji bara og standi eftir þeirra höfði. Það væri kannski sniðugt að senda honum Lunda í jólapakka, með kveðju frá ríkisstjórn Íslands. Kannski myndi hann taka það sem ákveðin skilaboð og halda sig annarsstaðar í framtíðinni.
mbl.is Óblíð náttúra og lundar hrelldu Ramsey
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Illa lyktandi og ósnyrtir runnar.

Skelfing lifandi er ég fegin að hafa ekki verið uppi á þeim tíma er mikill skapaháravöxtur var inni. Mér finnst slíkt svo óaðlaðandi og bara subbulegt. Það held ég að margar konurnar í þá daga hafi nú langlyktað þegar þær fóru úr nærfatnaði sínum, enda ógrynni af bakteríum sem setjast að í þessum brúskum.
mbl.is Hárvöxtur Miller aukinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Lolitan

Höfundur

Lolitalitla
Lolitalitla
Felubloggari með ágætis húmör! Ætla mest að kasta fram stuttum hugleiðingum um fréttir líðandi stunda. Kannski skrifa smá öðru hvoru um aðra bloggara, kannski senda inn athugasemdir einhvers staðar.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband