30.7.2008 | 13:36
Gott og mikið kynlíf fyrir hjónaband er ljúft ef það er öruggt.
Að sjálfsögðu á að fara að öllu með gát, nota verjur og njóta lífsins. Ótímabær þungun er ekki góð ef hún hlýst af stundarkynlífi á útihátíð með einhverjum sem kona veit engin deili á. Samt á að njóta lífsins og lifa hátt þegar maður er ungur, öruggt en mikið er málið þar til í hjónaband er komið. Hjá mörgum breytist kynlíf nefnilega þegar í hjónaband er komið, úr öruggu í óöruggt og miklu í lítið. Auðvitað eru alltaf undantekningar og ætla ég mér að verða ein af þeim, stunda mikið en öruggt kynlíf í hjónabandi seinna meir.
Umræða um kynferðismál Íslendinga oft skrýtin | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Lolitan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Er líf eftir dauðann? Er kynlíf eftir hjónaband?
Villi Asgeirsson, 30.7.2008 kl. 13:46
Hvað meinaru með að ótímabær þungun er ekki góð? Er það ekki bara eins misjafnt og fólk er margt. Þekki engan sem finnst börnin sín ekki góð, sama hvernig þau komu undir.
Ég er forvitin, hvað ertu eiginlega gömul? Skil ekki hugsunarhætti þína, hélt að svona hugsunarhættir væru útdauðir.
Nanna Katrín Kristjánsdóttir, 30.7.2008 kl. 16:43
Ótímabær þungun eins og t.d. eftir nauðgun á útihátíð eða eitthvað í þá áttina. Auðvitað þykir öllum vænt um börnin sín þegar þau koma, hef bara aldrei haldið einhverju öðru fram. Mínir hugsunarhættir eru mínir, þakka þér. Ef þér þykir þeir forneskjulegir þá er það í fínu lagi mín vegna, það truflar mig lítið.
Lolitalitla, 30.7.2008 kl. 23:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.