26.7.2008 | 22:37
Konur eiga ekki að vera í toppstöðum, enda er engin kvenleg fegurð í slíku brölti.
Ég skil ekki svona, við vitum vel öll að við konur eigum ekkert erindi í valdastóla. Þetta hefði átt að auglýsa frekar en að ákveða svona fyrirfram hver sest hvar, þá hefðu kannski góðir menn valist í stólana. Persónulega segi ég að við konur eigum ekki að vera að troða okkur fram, eigum að hugsa um mennina okkar og vera heimavinnandi þegar möguleiki er á. Skil ekki konur sem vilja nánast ganga í jakkafötum því vitað er að mesti kvenleikinn hverfur allur í svona toppstöðum. Hvaða karlmaður vill líka fá sér ástmær sem er forstjóri einhvers staðar?
Verið að fjölga konum í yfirstjórn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Lolitan
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
hehe :) þú ert að grínast.
alda (IP-tala skráð) 26.7.2008 kl. 23:03
Hjálpi mér, var konan komin í skipstjórnarstöðu? Vesalings konan bara, segi ekki meira. Hún hefur þá örugglega ekki þekkt eða átt fallegt heimili og fjölskyldu sem slíka. Sjóaralíf er ekkert fyrir konur, lítið meira um það að segja.
Nei alda, því skildi ég vera að grínast? Konur eiga ekki að trana sér fram á harðan vinnumarkaðinn heldur halda sig bakatil eða heima. Yndislegt heimilislíf byggist á góðri konu sem heldur heimilið fallega.
Lolitalitla, 26.7.2008 kl. 23:15
Ég segi baara eins og "Alda" - ertu ekki að grínast bara? Annars tel ég að konur eigi fullt erindi í stjórnunarstöður hvar sem er - ef þær hafa sýnt sig og sannað - sýnt að þær eigi heima í slíkum stöðum - hverjar sem þær eru.
Takk fyrir innlit hjá mér.
Tiger, 27.7.2008 kl. 00:28
Anna, Hvers konar maður er þessi skólafélagi þinn?
Sofa hjá karlinum í brúnni, sem það að auki er kona!!!
Sigurður Þórðarson, 27.7.2008 kl. 09:16
kannski sagðist skipstjórinn bara vera kvenkyns. kannski heitir hann Igor
Brjánn Guðjónsson, 27.7.2008 kl. 19:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Þú ert innskráð(ur) sem .
Innskráning