Spank me daddy.

Já það er nú ekket að því að stunda smá flengingar af og til en samt á að sleppa börnum úr myndinni. Fullorðnir aðilar sem fíla flengingar eru bara flottir, enda aldagömul hefð að stunda flengingar á kynferðislegan máta og ekkert við það að athuga. Alveg sjúr á því að þetta eykur lostann og gefur kynlífsbröltinu líf og lit. Fleiri mættu alveg stunda þessa dásamlegu kyn-íþrótt sem flengingar eru.
mbl.is Flengingar ekki alltaf ruddalegt eða ósiðlegt athæfi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Flækjur kvenna í pólitík + bloggarinn sem hótaði mér svæfingu!

Tilfinningalegar flækjur kvenna í pólitík eru þeirra dragbítar. Konur eru of viðkvæmar til að geta staðið í því að vera í fararbroddi yfir höfuð og eiga ekki að vera að trana sér áfram á þessum vettvangi. Þær flækja hlutina og láta tilfinningar ráða ferðinni en ekki skynsemi og þroska, en slíkt leiðir ætíð til árekstra og vandamála þegar það ætti að ríkja samstaða og eining. Undarleg tík þessi kvennapólitík, ekki satt?

Bloggarinn sem ætlar sér að "loka mér" í kvöld, svæfa mig og sjá til þess að ég fái ekki að blogga aftur er hér með upplýstur sem "þessi bloggari" .. verið nú samt góð við greyið því hann veit ekki hvað hann er að gjöra, fíbblið etta. Og ég sem var svo góð við hann .. dæssssss!


mbl.is Marsibil styður ekki nýjan meirihluta
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að gefa upp nafn á bloggara sem hótar að loka mig í kistu eða allavega að losa bloggið við mig?

Mér er hótað lífláti á netinu. Nú er langt gengið af því góða. Mér hefur verið hótað andlegu lífláti eða í það minnsta einelti, af sambloggara. Hvað ætli sé hægt að gera þegar slíkt gerist, hóta á móti eða kæra málið? Sá frómi bloggari sem hótar mér er þekktur hérna á blogginu en ég hef lítið gert af mér gagnvart þeim bloggara, smá kvitt að vísu. Eitthvað er bloggstíllinn minn að særa betri vitund þessa ágæta bloggara, nóg allavega til þess að nú er mér hótað lífláti annaðkvöld. Ég er að vísu ekkert að hafa of miklar áhyggjur af þessu, enda erfiðara nálgast mig en helvíti. Samt hefur þessi ákveðni bloggari leiðir til að komast að mér. Sjáum bara til annaðkvöld, spyrjum að leikslokum og sjáum hver sigrar!
mbl.is Christian Bale ekki ákærður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Wet stallion on my burgerKing, thank you.

Alveg er ég yfir mig bit á viðbrögðunum. Mér finnst þetta bara hið besta mál, sætur strákur og svona. Ekkert að því að fá smá bragð af súkkulaðistrák í matinn sinn, eða hvað? Ég veit ekki betur en að fólk sé nú að sleikja rjóma og fleira bara beint af öðru fólki, jafnvel án þess að þekkja viðkomandi nokkuð. Því er ekki í lagi að leyfa einum fola að baða sig í vaskinum þarna? Ekkert hættulegt við það held ég nú bara.


mbl.is Baðaði sig í vaskinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fékk maðurinn fullnægingu út úr æfingunni?

Æi, þetta er ekki einu sinni fyndið. Hvað kemur fólki við hvernig aðrir sækja sér fullnæginguna svo framalega sem engin hlýtur skaða af? Það verður víst að reikna með að karlgreyið hljóti að vera ljótur as hell fyrst hann þarf að leita á náðir æfingabekkjar. Það hefði nú einhver góðhjörtuð kona vel getað veitt greyinu aðstoð með því að opna sig aðeins fyrir honum, það hefði afstýrt svona æfingabekkjasexi. En næsta víst er að ég vona að hann hafi fengið fullnægingu eftir allt þetta show.
mbl.is Ýmislegt reynt til þess að fá fullnægingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er leið lögregluembættanna til að auka tekjulindir sínar fundin?

Jájá, svona fer löggan að því að hala inn aukatekjum sér til handa. Gera bíla eða hluti fólks upptæka bara til að geta notað slíkt í eigin hag. Ætli þetta sé eitthvað sem er þegar komið hingað til lands? Ætli löggan geri nú þegar upptæk farartæki hér á landi? Hvað verður um slík farartæki ef lögregluembættin í landinu gera þau upptæk, renna þau í kaffisjóð lögreglumanna?
mbl.is Fundu kókaín falið í lögreglubíl
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig lyktar þú þegar þú djammar?

Jú, víst er það satt að kynferðislegt þefskyn okkar er sterkt. En kannski ætti ég að segja kynferðisleg náttúruleg lykt okkar er sterk. Málið er bara að við erum sjálf búin að eyðileggja þessa náttúrulega lykt með því að yfirfylla baðkarið af sápulöðri, sjampó og næringum sem og alls skyns sáputengdu efnarusli. Því næst ausum við yfir okkur ilmvatni eða karlmenn rakspíra. Jújú auðvitað lyktar allt heila klabbið vel, en náttúrulega kynferðisleg lykt okkar er þar með horfin í veður og vind. En, svei mér þá, ég myndi ekki vilja anga af einhverju dularfullu sem á að laða að mér karldýri þegar ég er að djamma.
mbl.is Hr. Rangur valinn vegna pillunnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hlekkir eru í góðu lagi.

Já en sum börn þarf bara að taka með trompi til að koma í veg fyrir vandræði og vandamál. Það ætti nú ekki að skaða drenginn neitt þó hann sé hlekkjaður heimavið svo framalega sem hann getur náð sér í mat og drykk, en kannski hefði nú átt að hafa allavega kopp nálægan fyrst keðjan náði ekki á salernið. Stundum eru foreldrar bara ráðalausir og þá þarf stundum að grípa til örþrifaráða bara og það er í fínu lagi bara.
mbl.is Hlekkjaður við vaskinn á meðan foreldrar voru í vinnu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það eru ekki bara dúfur heldur eru Dúur líka til vandræða, í það minnsta á blogginu.

Alls staðar eru þær til vandræða og ekkert nema óþrifnaður sem frá þeim stafar. Það ætti nú bara að gefa frjálsan teygjubyssukvóta á þessi kvikindi. Borga bara börnum fyrir það að grýta þær eða skjóta nú eða veiða þær og skila þeim til slátrunar, dúfum er alltaf fylgjandi sóðaskapur. Burt með þennan ófögnuð.


mbl.is Vandræðadúfur í Búdapest
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erótík um allt landið er málið.

Já þetta er yndisleg hugmynd, fjölga ástarvikum bara um allt land. Næsta víst er að erótískt þenkjandi skvísa eins og ég myndi þá þræða landshlutana þann tíma sem ástarvikan væri hverju sinni. Því ekki að lyfta aðeins upp móral og gleði innan þeirra bæjarfélaga sem eru að missa fólk til Reykjavíkur? Finnst þetta frábært alveg hreint. Erótíkin er yndisleg, ég geri það sem ég vil og þori það líka, hvað með þig?
mbl.is Ástarvika höfðar til Spánverja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Lolitan

Höfundur

Lolitalitla
Lolitalitla
Felubloggari með ágætis húmör! Ætla mest að kasta fram stuttum hugleiðingum um fréttir líðandi stunda. Kannski skrifa smá öðru hvoru um aðra bloggara, kannski senda inn athugasemdir einhvers staðar.

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband